|
|
16.10.2006 11:41:21 / jonagk
jæja, ég er búin að fá nóg af þessu myndarugli hér...nenni ekki
að vera með einhverja sér síðu fyrir þetta svo ég færði mig yfir á
janedoe.bloggar.is. Síðan þar er enn í vinnslu svo þið bara fylgist
með 
»
21.09.2006 22:58:12 / jonagk
Já, það er orðið alltof langt síðan ég hef bloggað!!!
Ég hef nú reyndar alveg góðar og gildar ástæður fyrir því....ég
er nebblega búin að vera að flytja og þar af leiðandi ekki í
netsambandi. En nú er loksins komið net hér heima hjá okkur svo ég
fer að verða dugleg aftur!
En já ég var semsagt að flytja, við litla familían erum komin í
stærðarinnar parhús hér á Selfossinu. Tókum okkur á leigu 155 fm
parhús....íbúðin sjálf er 125 fm og svo 30 fm bílskúr og við erum
sko ekkert smá hamingjusöm hér!!!! Kristinn Snær er búinn að
ná þessu núna sagði alltaf fyrst, komin heim til Gauja...en núna
segir hann bara komin heim 
Þetta er algjört æði...4 svefnherbergi svo þar hafiði það engin
afsökun til að kíkja ekki í heimsókn!!! Nóg er af gistiplássinu!
Við erum alveg búin að koma okkur fyrir hér svo þá er að halda
partý....það verður núna á laugardaginn, þar sem ég er að fá
sveinsbréfið afhent þá fannst okkur tilvalið að halda bara eitt
stórt partý...útskriftar-innflutnings partý 
En áður en þetta skeði nú allt saman fórum við 3 saman í bústað
í Ölfusborgum og höfðum það notalegt í eina viku....mikið notaður
potturinn og solleis En svo átti litli guttinn líka afmæli 1.
sept...til hamingju með það elskan mín....orðinn 2 ára!!!!!!!! VÁ
hvað þetta líður...fer bara að líða að fermingu bráðu....hehe

En ég ætla ekkert að hafa þetta lengra í bili....farið vel með
ykkur og farið að drífa ykkur í heimsókn 
Bæjó í bili....er nánast sofnuð hérna yfir
tölvunni.....zzzzzzz
»
24.08.2006 00:40:16 / jonagk
Já svona á þetta sko að vera....mínir menn alveg að standa
sig...kannski ég vinni veðmálið eftir allt  
Köben here I come.....og já ÁFRAM MAN.UTD!!!!!!
»
21.08.2006 23:23:53 / jonagk
Já...kannski kominn tími á smá blogg. Hef reyndar ekki tíma í
einhverja langloku en allt æðislegt að frétta af okkur lilla 
Nýjustu og stærstu fréttirnar af okkur eru nú þær að við erum að
flytja í æðislegt hús ásamt honum yndislega Gauja okkar. Já,
haldiði ekki að skvísan sé bara komin á pikkfast með alveg hreint
yndislegum manni og við erum semsagt að fara að búa hér á
Selfossi.
Það er nú reyndar bara bráðabirgða meðan ég er soldið föst
hér í vinnu og lilli ný byrjaður á leikskólanum svo það er ekki
hægt að vera að rífa hann upp úr því ferli strax. Svo við fengum
frábært 5 herbergja parhús hér með bílskúr, stórum garði með
sandkassa og öllum græjum. Svo þar hafið þið það...nóg gistipláss
hjá okkur ÞEGAR þið kíkið á Selfoss....merkilegt samt hvað er langt
frá Reykjavík til Selfoss en stutt í hina áttina.....en við breytum
því núna Annars Er bara lítið....gekk vel til að byrja með á
leikskólanum en svo kom smá bakslag, en það lagast, annars er hann
voða góður þar...og reyndar alltaf 
En WOW...er ég ekki alveg að gleyma einhverju samt???!!!! Jú,
kannski eins og einni þjóðhátíð!!! VÁ hvað var svakalega gaman í
Eyjum!!!! Reyndar kannski full mikið drukkið en líka mikið sungið
og djammað. Veðrið bara snilld og svaka góð stemming....þó held ég
að bibbi hafi átt góðan þátt í stuðinu...allavega í matartjaldinu,
það var einmitt í boði Gauja og Einsa, þið eruð snillar Svo var
bara djammað...djammað meira....og alveg djammað í hel!!! En alltaf
gat ég samt sofnað.... Eignaðist fullt af nýjum vinum og svo
auðvita einn spes....það var hann Steini....takk fyrir samveruna
Steini minn, það var gaman að kynnast þér(bara þeir sem mættu geta
skilið þetta) 
Fórum svo á menningarnótt með strætó, horfðum á flugeldana og
kíktum á mannlífið og svo var bara farið heim með stubbana í rúmið
og við skelltum í okkur smá bjór og spiluðum einhvað frameftir.
En þá held ég að allt sé upp talið....við erum auðvita margt
búin að bralla en ég bara nenni ekki að skrifa meir, skrifa meira
bráðum...lofa samt engu en hver veit kannski verður næsta færsla
skrifuð á nýjum stað 
»
19.07.2006 01:36:26 / jonagk
Jæja vegna fjölda áskorana hef ég ákveðið að blogga aðeins.
Mikið að gera hjá skvísunni þessa dagana. En við Kiddi litli
fórum í ferðalag saman í byrjun júlí þegar ég tók síðustu vikuna
mína í sumarfríi og skelltum okkur reyndar fyrst á ættarmót sem var
æðislegt og fórum svo í road trip. Keyrðum á Ólafsvík og tjölduðum
þar....tókum svo reyndar upp tjaldið daginn eftir og flúðum inn til
Heiðrúnar og Nonna sem betur fer því það var nú bara stormur og
grenjandi rigning um nóttina. Við skruppum í sund í Grundafirði og
skoðuðum svo Stykkishólm og voða gaman aðeins að skoða landið.
Ætluðum svo að fara og skoða strandirnar og enda á Ísafirði en
veðurspáin hljómaði svo illa að við flúðum heim...reyndar með smá
viðkomu í Munaðarnesi þar sem skyldfólk okkar var í bústað 
Svo vikan varð bara róleg, fórum svo á hitting í mömmuklúbbnum
sem ég er komin í, það var bara voða næs...fullt af litlum sætum
krílum og skemmtilegum mömmum...hlakka til að hitta allar aftur
Svo dúlluðumst við líka aðeins með Rögnu og við skvísur skelltum
okkur í bíó á Break-up...verð nú bara að segja að ég varð fyrir
verulegum vonbrigðum þar een samt sæmileg mynd. Svo má nú ekki
gleyma Lóu frænku sem gaf lilla þennan líka ÆÐISLEGA bíl!! Risastór
formúlubíll...bmw, sem hann situr í og er með pedulum...takk
æðislega, hann er búinn að vekja mikla lukku og Kiddi litli man sko
ennþá hver gaf honum þennan kagga!!!
Svo var síðasta helgi alveg stútfull. Kiddi litli fór í á
fjölskyldumót með ömmu sinni og afa. Ég var nebblega í
brúðkaupsstússi. Inga Dóra og hennar maður hann Tommi voru að gifta
sig! Já til hamingju með það elskurnar þið eruð æðisleg hjón!! Vona
svo sannarlega að mitt brúðkaup heppnist svona vel....ekki að það
sé á döfinni ég bara tek svona til orða En ég fékk þann heiður
að greiða brúðinni sem var bara skemmtilegt...fór svo auðvita í
þessa fallegu athöfn sem var í Villingaholtskirkju og veisluna í
Þjórsárveri. Mikið byggt á sveitarómantík greinilega og var
það bara fallegt, harmonikkuspil og partýgítar. Takk æðislega fyrir
mig!! Svo fór sunnudagurinn algjörlega í ÞYNNKU!!! Já held
hreinlega að ég hafi bara aldrei verið eins þunn!!! Kenni sko
hvítvíninu algerlega um það!
Jæja þetta er svona það helsta, en auðvita er margt annað
spennandi að ske hjá mér...en kem að því seinna 
Þangað til næst...bæjó og hafið það gott!
»
27.06.2006 21:48:32 / jonagk
Jæja....ekkert mikið búið að ske hér hjá mér núna.
Alveg orðin góð í framan og sakna Spánar alveg SVAKALEGA!!
Langar bara að pakka niður og fara....enda ekki margt sem heldur í
mann hér á klakanum nema rigning!! Já ég er sko ekki vinur
rigningarinnar. En vonandi fer þetta að lagast.
Ég er aðallega búin að vera að vinna núna....17 júní fékk
Kristinn Snær að setjast á mótorhjól en svo þegar gaurinn ætlaði að
fara af stað þá fór lilli að væla og sagðist sko ekki vilja keyra
mótorhjólið! En svo kíktum við á Flúðir þar sem gamla settið var
með hjólhýsið. Um kvöldið skutumst við svo í bæinn, Kristinn Snær
var hjá Öddu mömmu Rögnu og ég fór í Hawaii partý hjá Söru og Ella,
feiknarfjör þar!!
Svo síðustu helgi var Ömmustuð og reyndar var ég líka að gæsa
Ingu Dóru og þessi helgi var bara æðisæleg!! Fór í Árnes þar sem
Ömmustuð var haldið á föstudag eftir vinnu, brunaði svo í bæinn
fyrir hádegi á laugardag til að gæsa. Það var algjör snilld, fengum
svaka hönk til að ná í hana og gefa henni einn bjór meðan hann
rúntaði með hana og endaði með hana í keiluhöllinni. Þar var hún
sett í Tazmanian devil búning og við drifum okkur í keilu. Eftir
keiluna fengu sumar sér að borða og drekka. og svo var haldið í
ratleik með mjög svo leikrænu ívafi ásamt mörgum skotum og flugu
þegar á leið nokkrir góðir brandarar! Ratleikurinn endaði svo í
Kolaportinu þar sem við tók kapphlaupið mikla. Með eins líinn
pening og möglegt var átti hún innan tímamarka að finna sér dress
fyrir kvöldið.....allt saman!! Svo var henni ýtt inn á klósett þar
sem hún skipti um föt og var þá með afró hárkollu, í rauðum
silkikjól og með afleitt skart!! Svaka pæja þegar hún svo labbaði
um miðbæinn og bauð góðan dag, ásamt því að bjóða nokkrum uppá
kókosbollur í hitanum Svo reyndar stakk ég af þegar þær ætluðu
að fara að borða svo ég næði restini af ömmustuði en djamma bara
enn meira í brúðkaupinu....skilst að það eigi að vera hörku fjör!!
Spurning hvort ekki verða einhverjir álitlegir piparsveinar þar

En svo eftir grillið í Árnesi var farið í fullorðins leiki því
barna leikirninr voru að deginum til. Ég var auðvita dregin í einn
leik sem vara algjör snilld!! Boðhlaup með ullasokka á höndum og
fullorðinsbleyju á bossanum, hlaupa að borði, opna tyggjóplötu sem
þar var, tyggja hana og blása kúlu, hlaupa til baka og setja bleyju
á næsta mann osfrv. ÆÐI!!!! Kristinn Snær reyndar grét bara og
sagði "mamma ekki beyju" ekki alveg sáttur Svo var bara eins og
venjan er gítarspil og söngur fram eftir nóttu og við systkynin (
ég og Hjálmar) fórum seinust inn um kl. 6 
En þetta var bara æðisleg helgi og vonandi verður næsta helgi
svona góð líka, en þá er ættarmót í Borgarfirðinum. Svo er
hugsanlegt að ég verði bara í fríi vikuna þar á eftir og aldrei að
vita hvað maður gerir......endilega það fólk sem er í sumarfríi
látið mig vita...kannski maður kíki þá eða dregi einhvern með í
útilegu 
En farin í bili.....hafið það gott öll!!
»
14.06.2006 23:57:35 / jonagk
Jæja, þá erum við komin heim, ég búin í fríinu og langar bara að
vera ennþá í fríi!!
En Spánn var ÆÐI!! Ohh, okkur langaði sko ekki heim í kuldann
aftur...allan tímann bara um og yfir 25°c allan tímann. Meira segja
sagði Kristinn Snær á ca. 4 degi "mamma, við ekki Ísland" ég
nottlega bara HA??? " nei við bara vera hér" bara snilli þessi
gutti minn En þegar við lentum á Malaga byrjaði ég á að rífa af
okkur fötin því það var bara hita molla! Svo keyrðum við til
Marbella...sem er bara geggjaður staður!! Fórum að borða á Friday's
og röltum svo um Puerto Banus, sem er down town Marbella....alveg
stórkostlega flott snekkjuhöfn, og af því sem ég heyri er engin
snekkja þar undir 100 millum....enda allar svakalega flottar...nema
reyndar ein sem er bara gömul og ljót  
Í garðinum hjá þeim var svo ein stór sundlaug og buslulaug sem
reyndar var hálftóm, en engu að síður bara næs! Ferðin fór svo bara
í að liggja í sólinni, busla í lauginni, fórum á markað, kíktum á
tvær strendur...seinni var svaka skemmtileg, þar voru leiktæki og
allskonar. Hún heitir Funny beach, við Einar og Aron fórum þar í go
kart, Aron og Kiddi litli sigldu klessubátum, við Ásta fengum
heilnudd...sem var sko bara notalegt!! Svo var bara verið í
sólinni, skálað, hlegið og leikið sér..endalaust
fjör!! 
Reyndar lenti ég í smá slysi...sofnaði aðeins í sólbaði, óvarin.
Brann auðvita svakalega í framan, bar á mig sterkari vörn og hélt
áfram að vera úti...sem var greinilega ekki gott því ég vaknaði
daginn eftir svakalega bólgin í framan, fór í apótekið og fékk
einhver krem en svo endaði með því sint kvöldið eftir að við fórum
í annað apótek til að fá ofnæmislyf....ef þið hafið séð fílamanninn
eða hringjarann frá notre dam þá getiði ímyndað ykkur hvernig ég
leit út!!! En ég er orðin góð núna, fór til doksa þegar ég kom heim
og fékk þar augnkrem því augun voru að þorna upp....læknirinn sagði
mér að það hefði munað MJÖG litlu, kannski klukkutíma og ég hefði
ekki vaknað aftur, fékk einhvern vott af sólsting og hrikalega
mikinn bruna sem á endanum myndaði ofnæmi fyrir
sólinni!!!  
En ég lifði af og ætla sko að nýta mér það!! En eftir að ég var
búin að jafna mig ákváðum við Kiddi litli að skreppa í Skorradalinn
til Guðrúnar, Svenna, Friðveigar og bumbukrílisins. Það var bara
áframhaldandi slökun og notalegheit, fórum í pottinn og höfðum það
gott. Ég tók klippisettið með til að redda hárinu á Svenna og
lagaði svo Guðrúnu fyrst ég var byrjuð En svo fór Friðveig í
leikskólann á mánudagsmorguninn í aðlögun og við ákváðum að kíkja
með og fara aðeins í kaupfélagið...það er alltaf svo gaman að kíkja
í svona kaupfélög úti á landi...það er hreinlega ALLT til þarna!!
Svo seinnipartinn eftir blund keyrðum við Kiddi litli í bæinn,
keyrðum fram á hjólhýsi á hliðinni og jeppinn hékk einhvernvegin á
því Þegar við komum í bæinn hittum við Rögnu og kíktum með
henni í mat og það var voða gaman að hitta hana aftur eftir langan
tíma! 
En svo bara eyddum við saman síðasta frídeginum í að fara út að
labba og dúlla okkur, ég fór svo á fund í leikskólanum og fékk að
vita allt um leikskólann og það að hann byrjar í aðlögun 20.
júlí!!! VÁ ég er svo spennt!!! 
En svo í dag mætti ég aftur í vinnu eftir frí og það var bara
gaman því meðan ég var úti fékk ég að vita að ég náði öllum
sveinsprófunum og þess vegna eftir morgundaginn er ég orðin
hárgreiðslusveinn!!!!! Samningurinn minn rennur út á morgun svo þá
verð ég opinberlega búin með námið alveg!! Finnst það samt svo
skrýtið að þurfa ekkert að mæta aftur í skólann og ekki taka nein
próf aftur.....
En nú er bara að finna sér meira að læra...fer reyndar vonandi í
meistarann strax í haust svo þá verð ég alveg búin eftir það 
En nú er ég að spá í að fara að lúlla, vinna á morgun og svo bíó
og kaffihús annaðkvöld! Læt aldrei aftur líða svona langt á
milli aftur....promise!! Bæjó....Jóna brúna
skvísa 
»
30.05.2006 23:11:46 / jonagk
Hæhæ allir!
Jæja þá er þetta búið!! Ég er búin að ljúka stórum áfanga í mínu
lífi núna....komin með menntun! En ég á reyndar eftir að fá út úr
sveinsprófunum en ég lofa að leið og ég veit það þá kemur það hér
inn
Ég er samt búin að ná einu markmiði...ég setti mér markmið í
byrjun annarinnar að fá ekki undir 8 í neinu og ég náði því! Ég var
með 8,5 í galanum, 8 í klippingu, 9 í lit, 8,7 í bylgjum, 8 í
blæstri...já svona var bara einkunnaspjaldið endalaust gott!!
En nú er mín sko komin í langþráð sumarfrí! Og ekkert að bíða
með það að komast í sól...ég er að fara úr landi eftir einn og
hálfan sólarhring!!! Við Kiddi litli ætlum að fara í loftið ásamt
Aroni Inga (syni Einsa bró) kl. 12:40 á fimmtudag!!! Lendum í
Malaga kl 19 á staðartíma (17 ísl) keyrum þá til Marbella þar sem
við verðum í vellystingum í viku í sólinni 
Amma Jóna kom heim frá Barcelona í dag kaffibrún og sæt. Gaf mér
afgangs evrurnar sínar í útskriftargjöf....sem er auðvita bara
frábært svo ég geti notað þær úti Svo fékk Kiddi litli bol og
derhúfu sem fer aftur til Spánar 
En sveinsprófin gengu hel ég bara vel....þetta var nú samt alveg
ógó strembinn dagur og reyndar bara öll helgin!!!! En gott að þetta
er búið..nú er bara að krossa fingur og vonast til að ná og þá er
þessi kafli búinn hjá mér! Ég er ekki alveg að átta mig á að það
sem ég er búin að vera að gera undanfarin 6 ár (með smá hléum) sé
bara sísona búið! En fínt. É gmá ekki vera að því að setja prófa
myndir inn því ég er orðin sein með allt fyrir Spán...ekki
einusinni byrjuð að pakka!!!!! En geri þetta allt þegar ég kem heim

Góða skemmtun á klakanum á meðan..ég er svo að plana djamm
hugsanlega þegar ég kem heim með skvísunum mínum, Dísu og
Rögnu....skráning hér fyrir neðan 
Bæjóspæjó....Jóna skvís!!
»
26.05.2006 00:11:28 / jonagk
....til að blogga þessa dagana en ég lofa að koma með gott blogg
á mánudag...svo mikið prófa dæmi hjá mér núna.
Bara 7 dagar í Spán!!!! Heyrumst!
»
21.05.2006 00:57:52 / jonagk
Já, ég get sko ekki sagt annað en að ég sé sátt við eurovision
þetta árið! Mér fannst þeir bara hreinlega lang bestir...engin
abbastæling þar á ferð!!
En annars er bara fínt að frétta hér á bæ. Stór dagur í
gær...útskriftin í skólanum! Jammz ég er loksins búin að fá rauðu
húfuna! Þetta var rosa flott athöfn og hvorki meira né minna en um
250 sem útskrifuðust...semsagt löng athöfn! En eftir það kíkti ég
aðeins á Söru mína því hún komst ekki um kvöldið að fagna með mér.
Svo var brunað til Rögnu skvísu og við náðum í Dísu skvísu. Þá lá
leiðin á Vegamót þar sem við áttum borð. Það reyndar helltist
aðeins úr lestinni því Guðrún Svala lenti í bílslysi á
miðvikudaginn og var bara ekki búin að jafna sig....og ég skil það
bara mjög vel!! Hún og Friðveig dóttir hennar í bílnum og hún sjálf
ekki kona einsömul og þær fóru 4 veltur takk fyrir !!!!! En
sluppu sem betur fer meira og minna ómeiddar sem er hreint
kraftaverk sem við þökkum öll mikið fyrir! Hafðu það gott elskan!!
En við Dísa fengum okkur hvítvínsglas á meðan við biðum eftir
Jónínu og Bjarney. Svo var borðað hlegið og tekið slatta af myndum
sem ég set hér inn sem fyrst! Jónína Ásta var algjör hetja að mæta
því hún missti afa sinn sama dag...samúðar kveðja til þín og ykkar
allra, hann var frábær maður! En við nutum kvöldsins alveg í
botn...allavega ég. Og skvísur takk æðislega fyrir blómin og
gjöfina, æðislegt! Á Vegamótum hittum við svo Dani (já Sara mín það
vantaði sko útlendingahersveitina!!) sem vildu endilega fá að taka
myndir af hópnum saman fyrir okkur...á okkar vélar auðvita..fá nú
ekki allir mynd af þessum skvísuhóp!! Svo vildu þeir endilega
splæsa hvítvín á línuna þegar þeir komust að því hjverju væri verið
að fagna...takk dönsku gæjar! Tók líka mynd af þeim Veislan
verður svo í september þegar afhending sveinsbréfanna
verður...nenni ekki að halda veislu fyrr en þetta allt er búið

Svo á fimmtudaginn lenti ég í því óheppilega atviki að bakka
á...bakkaði inn í farþegahurðina á nýlegum Skoda...sem betur fer
var enginn farþegi í þeim bíl og tjónið ekkert mjög alvarlegt...sér
ekki mikið á mínum miðað við hinn...munurinn á Skoda og Nissan

En annars er bara búið að vera rólegt meðfram
prófalestrinum...ég er að fara í bóklega sveinsprófið á
þriðjudaginn....púff! Maður á svo ekki eftir að sofa vel í nótt
vitandi af þessari innbrots öldu hér á Selfossinu...en Ragna skvís
er hjá mér í nótt svo ég hugga mig aðeins við að vera ekki
ein...bara læsa allt verðmætt inni!!!
Jæja...komið gott í bili...síjahíja bæjó!!
»
16.05.2006 23:03:31 / jonagk
»
11.05.2006 23:05:16 / jonagk
»
04.05.2006 00:01:14 / jonagk
»
02.05.2006 22:45:57 / jonagk
»
01.05.2006 02:14:19 / jonagk
Já, átti bara góðan dag í dag.
Við mæðgin fórum venjulega rúntinn okkar svona á
sunnudagsmorgni...það er til ömmu og ömmu Svo eftir
blundinn hans Kidda litla komu Bjarney og Lilja Rún í heimsókn og
þau frændsystkinin voru úti á palli að leika sér í sandkassanum
heillengi...svaka stuð þar 
Svo fórum við bara að versla og elda æðislegan kjúllarétt!
stolt,stolt!! Svo kom Bjarney aftur í kvöld og er mikið búið
að spila í allt kvöld. Hún kenndi mér þetta fína spil og svo tókum
við einn popppunkt sem btw við erum alveg orðnar snillar í 
En eins og þið kannski sjáið er ég búin að setja inn link hérna
til hliðar með myndum af dimmiteringunni svo eru á leiðinni fleiri
myndir af mér og mínum og ýmsu skemmtilegu 
En svo langar mig að votta samúð og virðingu öllum sem þekktu
Herbert Grånz sem fyrirfór sér um páskana og benda ykkur kæra fólk
á heimasíðu vinahópsins hans www.blog.central.is/godfellas...þar er
lag sem einn vinanna samdi og syngur og þetta er eitt það
fallegasta lag sem ég hef heyrt um greinilega frábæran og mikils
metinn strák...öll mín samúð, knús og kossar til ykkar
allra
En nú er ég að spá í að fara að halla mér...endilega kíkið
á myndirnar 
Nightynight everyone...skólskvísan sem er næstum því útskrifuð
»
Síður: 1 2 3
|
|